|
Við erum rauð og gul
Hinar glæsilegu dönsku HTH innréttingar skiptast í rauða og gula línur. Þessi rauða er löngu orðin þekkt hér landi enda hafa þessar innréttingar notið mikilla vinsælda. Í sýningarsal okkar í Ormsson húsinu á horninu í Lágmúla 8 getur þú séð úrvalið af þessum fallegu innréttingum. Þar bjóðum við líka “gulu línuna “ sem er ódýrari útfærsla af HTH innréttingum og við köllum “Settu Það Saman” . Þær innréttingar eru ósamsettar einingar og bjóðast á einstaklega hagstæðu verði en byggjast eigi að síður á þeim lausnum og vandvirkni sem einkennir HTH merkið.
Báðar línur styðjast við hið danska HTH hugvit, smekkvísi og gæði en úrvalið í þeirri rauðu er yfirgripsmeira. Verðið á þeirri gulu er hins vegar svo hagstætt, að það er þess virði að velta fyrir sér hvort maður geti ekki gert þetta sjálfur eða fengið einhvern góðan með sér. Gula línan, Settu það saman, finnurðu líka í verslunum okkar á Akureyri og Akranesi. |

Fara efst á síðu


















