Skrifstofutæki
Skrifstofutækjadeild

Úrval skrifstofudeildar Ormsson er byggt upp  af vörum frá Sharp, enda eitt þekktasta merkið í skrifstofuvörum í heiminum. Þegar við bætist mikil reynsla starfsmanna og sá þungi sem Ormsson leggur á þjónustu, þá erum við sannfærð um að geta uppfyllt ítrustu kröfur fyrirtækja varðandi prentlausnir og önnur hjálpartæki skrifstofunnar.

Ljósritunarvélar frá SHARP eru þekktar fyrir einstök gæði, hagkvæmni og mikið rekstraröryggi og gildir það hvort sem um gömlu "analog" vélarnar er að ræða eða nýju stafrænu tæknina. Þær stafrænu hafa reyndar marga kosti umfram þær eldri. Má þar helst nefna að með þessari nýju tækni sameinast í einu tæki ljósritunarvél, leiserprentari, skanni og faxtæki. Stafrænu myndgæðin eru einnig mun meiri auk þess sem þær eru hagkvæmari, hljóðlátari og hafa mun fleiri valkosti í útprentun. Í stærri vélunum er t.d. hægt að prenta og hefta bækling beint úr tölvu.

Stafrænar SHARP ljósritunarvélar eru skráðar hjá Hollustuvernd Ríkisins sem umhverfisvæn framleiðsla og hafa leyfi til að nota norræna umhverfismerkið Hvíta Svaninn.


Fara efst á síðu
Upplýsingar eru settar fram með fyrirvara um prentvillur og ófyrirsjáanlegan vöruskort