Fyrirtækið

Gott úrval, mikil gæði, góð þjónusta og gott verð

Hjá Ormsson trúum við því að þessi þættir eigi stóran þátt í þeirri tryggð sem viðskiptavinirnir hafa sýnt okkur í þau ríflega 80 ár sem fyrirtækið hefur verið rekið. Við bjóðum ekki ódýrustu vörurnar, heldur gæðavörur á góðu verði. Við þekkjum vörurnar okkar og njótum þess að kynna þær. Og við teljum viðskiptunum ekki lokið þegar þið farið frá okkur því ef eitthvað kemur uppá, erum við alltaf til taks.

Rekstur Ormsson hefur tekið talsverðum breytingum á undanförnum árum. Ýmsar einingar rekstrarins hafa verið seldar og sjónum beint enn frekar að heimilistækjamarkaði. Í dag rekur fyrirtækið 2 verslanir á höfuðborgarsvæðinu: Í Lágmúla 8 er heimilistækjadeildin og HTH innréttingarnar. Á einum stað er því hægt að sameina vangaveltur um innréttingar, innbyggingartæki og önnur eldhústæki. Í Síðumúla 9 eru hljómtæki, skrifstofutækin og skrifstofur fyrirtækisins. Auk þess er Ormsson á Furuvöllum 5, Akureyri og í Hafnargötu 25, Reykjanesbæ. Ef þú gerir kröfur, ætturðu að koma í Ormsson – þar eru þær uppfylltar.

Upplýsingar eru settar fram með fyrirvara um prentvillur og ófyrirsjáanlegan vöruskort