
Gott úrval, mikil gæði, góð þjónusta og gott verð
Hjá Ormsson trúum við því að þessi þættir eigi stóran þátt í þeirri tryggð sem viðskiptavinirnir hafa sýnt okkur í þau ríflega 80 ár sem fyrirtækið hefur verið rekið. Við bjóðum gæðavörur á góðu verði, við þekkjum vörurnar okkar og njótum þess að kynna þær. Við teljum viðskiptunum ekki lokið þegar viðskiptavinurinn gengur frá viðskiptunum heldur teljum við að þá séu þau að hefjast, ef eitthvað kemur uppá, erum við alltaf til taks.
Meginstarfsemi Bræðranna Ormsson er innflutningur og smásala í dag einbeitum við okkur að innflutningi og sölu á heimilistækjum, innréttingum, sjónvörpum, hljómtækjum, farsímum, tölvum og tölvuvörum. Fyrirtækið rekur 2 verslanir á höfuðborgarsvæðinu, í Lágmúla 8 er heimilistækjadeildin, og HTH innréttingarnar. Á einum stað er því hægt að sameina vangaveltur um innréttingar, innbyggingartæki og önnur eldhústæki. Í Lágmúla 8 eru einnig hljóm- og skrifstofutækin enn í Síðumúla 9 er Samsungsetrið þar sem að boðið er upp á heimilistæki, sjónvörp, hljómtæki, myndavélar, farsíma og tölvuvörur frá Samsung einnig eru skrifstofur fyrirtækisins þar til húsa. Auk þess er Ormsson á Furuvöllum 5, Akureyri og í Hafnargötu 25, Reykjanesbæ. Ef þú gerir kröfur, ætturðu að koma í Ormsson – þar eru þær uppfylltar.

