Ábyrgðarskilmálar

Samkvæmt skilmálum Félags Raftækjasala Seljandi veitir kaupanda, TVEGGJA ÁRA ÁBYRGÐ frá tilgreindum afgreiðslutíma og er hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum þeim hluta þess sem áfátt kann að vera, enda bendi líkur til þess að um framleiðslu- eða efnisgalla sé að ræða. Ábyrgðin nær til efnis og vinnulauna vegna hugsanlegra viðgerða, auk ferðakostnaðar (laun og akstur) viðgerðarmanns allt að 15 km hvora leið, eða flutnings tækis sömu vegalengd sé tækið fyrirferðarmeira eða þyngra en svo, að kaupandi geti auðveldlega komið því sjálfur á verkstæði seljanda, eða þess sem hann vísar til.

Kaupandi ber sjálfur kostnað af tilkynningu um bilun svo sem símakostnað og annan slíkan. Sé bilað tæki utan byggðarlags seljanda, skal það borið undir hann, hvort senda skuli það til viðgerðar eða kveðja til nærstaddan viðgerðarmann. Skuli tækið sent, er minnt á nauðsyn þess að nota góðar og vel merktar umbúðir, fara að fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann kveður á um sérstakan flutningsbúnað og möguleikana á að tryggja tækið gegn flutningsskemmdum. Ennfremur skal fylgja lýsing á bilun. Skuli kvaddur til viðgerðarmaður, afgreiðir seljandi varahluti til viðgerðarinnar á sinn kostnað gegn því að honum séu endursendir hinir gölluðu hlutir ef hann óskar. Vinnulaun og ferðakostnað viðgerðarmanns að ofangreindu marki (15 km) greiðir seljandi eftir sundurliðuðum reikningi viðgerðarmanns enda beri reikningurinn með sér eftirtalin atriði:

1. Heiti tækis, gerð, númer og dagsetningu reiknings, samkvæmt þessu skírteini.

2. Viðgerðardag og lýsingu á framkvæmdri viðgerð.

3. Fullt nafn og heimilisfang viðgerðarmanns eða fyrirtækis þess sem viðgerðina annaðist.

Ábyrgðin nær ekki til bilana sem framleiðanda eða seljanda verður ekki um kennt, svo sem bilana sem stafa af flutningi, rangri meðferð eða misnotkun, slælegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum, truflunum á rafkerfi hússins eða veitunnar o.s.frv.

Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns vegna hugsanlegra galla á tækinu, en kaupanda er bent á möguleikana á að tryggja sig gegn slíku hjá tryggingafélögum.

Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo sem að galli sé tilkynntur strax og hans kann að verða vart og að ekki hafi verið átt við tækið af aðilum óviðkomandi seljanda, nema í samráði við hann.

Ath. varðandi þvottavélar: Ekki er tekin ábyrgð á kolum og reimum vegna slits.