Samsung Veggofn Bespoke
Samsung Veggofn Bespoke
- Stærð: 76L
- Orkuflokkur: A+
- Sjálfhreinsikerfi
- Nettengjanlegur
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
Samsung Bespoke veggofninn er glæsilegur ofn sem gefur þér tækifæri til að vera skapandi í eldhúsinu þínu. Hann er með Dual Cook, Air Fryer kerfi og SmartThings sem gerir eldhúsupplifun þína enn betri, sparar tíma og eykur þægindin. Þessi veggofn er frábær lausn þar sem ekki er pláss fyrir tvo ofna. Einn ofn, þrír möguleikar.
Einn ofn, þrír möguleikar
Þú getur skipt ofninum upp í tvö aðskilin svæði og/eða notað hann sem eina heild. Hægt er að elda aðalréttinn í neðra hólfinu og meðlætið í efra hólfinu á öðru hitastigi eða nota allan ofninn fyrir stóra rétti eins og kalkún.
Sveigjanleg hurð
Hægt er að opna efri helming hurðarinnar sem er þægilegt þegar einungis er verið að nota efri hluta ofnsins.
Stjórnun
Ofninn er með 4.3 tommu LCD skjá, snertistjórnun og snúningstakka. Skjárinn gefur einnig góða yfirsýn yfir það sem er að gerast í ofninum.
AirFry kerfi
Með AirFryer bakkann í ofninum hreyfist heita loftið í honum stöðugt og eldar þannig matinn þinn með hinni fullkomnu skorpu og stökkri áferð.
Air Sous Vide
Kemur í veg fyrir að maturinn þinn þorni eða ofeldist með því að skynja nákvæmlega hitastigið í steikinni og viðhalda því í langan tíma. Athugið að nota þarf Sous Vide poka til að elda mat með þessu kerfi.
Dual Cook Steam gufukerfi
Hægt er að bæta gufu við baksturinn eða eldamennskuna. Þú færð stökkari brauðskorpu með gufunni og eins verður maturinn þinn stökkur og safaríkur. Með þremur kraftstillingum er auðvelt að finna hina fullkomnu áferð fyrir þína eldun og smekk.
SmartThings appið
Gerðu eldhúsupplifun þína enn ánægjulegri með SmartThings Cooking sem bæði sparar tíma og dregur úr fyrirhöfn við matreiðslu. Með því að skilja þínar þarfir í eldhúsinu þá kemur SmartThings Cooking með tillögur að uppskriftum er henta fyrir þig.
Pyrolytic sjálfhreinsikerfi
Þú velur hreinsunnarkerfið og tímalengdina og ofnin byrjar strax að hita sig upp í 400°C og brennir öll óhreinindi að innan. Eftir á er hægt að strjúka öskuna auðveldlega í burtu.
Kjöthitamælir
Innbyggður kjöthitamælir hjálpar til við að ná sem bestum árangri við eldamennskuna.
Orkunotkun
Þessi veggofn er í orkuflokki A+ sem er þýðir orkusparnað fyrir þig og umhverfið.
Kerfin
Þú getur valið á milli fjölmargra eldunarkerfa eins og blástur, undir og yfirhita, grill, sparnaðarkerfi ásamt fleirum
Fylgihlutir
Kjöthitamælir, 2 skúffur, 2 grindur, airfryer grind, skiptiplata og útdráttarbraut.
Og svo hitt
Ofninn er með 76 lítra innra rými og mjúklokun á hurð.
- Stærð: 76L
- Orkuflokkur: A+
- Sjálfhreinsikerfi
- Nettengjanlegur
- Lítrar: 50
- Með örbylgju
- Gufuhreinsun
- Nettengjanlegur
- Stærð: 76 L
- Orkuflokkur: A+
- Sjálfhreinsikerfi
- Nettengjanlegur
- OLED
- 240Hz
- 32:9
- 0,1MS Viðbragðstími
- AMD Freesync Premium
- Ultra WQHD